Orka náttúrunnar reisir nýtt hús innan Jarðhitagarðs við Hellisheiðarvirkjun undir nýsköpun, samstarf og þekkingarmiðlun. Í þessu húsi munu sprotafyrirtæki, frumkvöðlar og vísindafólk vinna saman að sjálfbærum lausnum framtíðarinnar.

Í Jarðhitagarði hafa fyrirtæki aðgang að jarðhitaauðlindum, endurnýjanlegri orku og landi til uppbyggingar. Þar hefur skapast öflugt samfélag framsækinna fyrirtækja sem leggja áherslu á sjálfbærni, hringrásarhugsun og nýtingu auðlinda á ábyrgan hátt.

Við leitum að nafni sem fangar anda hússins – framsækni, sjálfbærni og samvinnu.

Verðlaun fyrir sigurtillöguna:

Dómnefnd nafnasamkeppninnar skipa:

  • Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups
  • Silja Bára R. Ómarsdóttir, tilvonandi rektor Háskóla Íslands
  • Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska Sjávarklasans
  • Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON
Skilafrestur til 1. júní!

Vertu með í Jarðhitagarði

Við bjóðum velkomin í samfélag Jarðhitagarðsins sjálfbærnimiðuð fyrirtæki, sprotafyrirtæki og nýsköpunarverkefni sem starfa til dæmis við orkuframleiðslu og orkunýtingu, landbúnað, þörungaeldi, líftækni, ferðaþjónustu, vistvæna efnisframeiðslu og þau sem leggja áherslu á heilsu og vellíðan.