Skilmálar vegna nafnasamkeppni

Leikskilmálar vegna þátttöku í nafnasamkeppni á vegum Orku náttúrunnar (hér eftir nefnt ON).

1. Með því að taka þátt í leik á vegum ON, samþykkir þátttakandi þessa skilmála. Þeir gildamilli þátttakanda og ON, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík.

2. Almennt aldurstakmark leikja er 18 ár, nema annað sé tekið fram í skilmálum einstakra  leikja. Hver þátttakandi getur sent inn eins margar tillögur og vill. Þátttakandi skal skrá réttar upplýsingar um sig. Starfsfólk ON sem vinnur að þessari nafnasamkeppni og  einstaklingar á heimilum þeirra eru undanskilin þátttöku. Öðru starfsfólki ON er frjálst að  senda inn tillögur að nafni.

3. Upplýsingar um þátttakendur eru nýttar til að koma á framfæri upplýsingum vegna leikja og til að tryggja að upplýsingar séu rétt skráðar. Með samþykki þátttakanda 18 ára og eldri mun ON nýta uppgefnar upplýsingar til að kynna fyrir þátttakanda vörur og þjónustu ON og starfsemi fyrirtækisins að öðru leyti. Þátttakandi getur afturkallað samþykki sitt fyrir þátttöku í leik ON hvenær sem er með því að hafa samband við ON með þeim leiðum sem kynntar eru á vef fyrirtækisins. Vilji þátttakandi ekki fá kynningar um vörur og þjónustu ON sem þeim gæti borist í tölvupósti eftir að hafa samþykkt skilmála er hægt að smella á hlekk neðst í tölvupósti og afþakka þannig frekari tölvupósta.

4. Samskiptaupplýsingar þátttakanda eru varðveittar með öruggum hætti og meðhöndlaðar skv. íslenskum lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

5. Gegn samþykki þátttakanda getur ON birt upplýsingar eða myndir af vinningshafa á miðlum ON þegar tilkynnt er um vinningshafa.

6. Ef sigurtillaga keppninnar berst oftar en einu sinni, gildir sú innsending sem barst fyrst samkvæmt tímastimpli. Aðrir sem sendu inn sömu tillögu eiga ekki rétt á verðlaunum.

7. ON áskilur sér rétt til að breyta fyrirkomulagi og skilmálum leikja, svo sem vinningum eða ávinningi.

8. Um skilmála þessa gilda íslensk lög og er varnarþing í Reykjavík

Gagnlegir hlekkir