
Umhverfi til vaxtar
Jarðhitagarður Orku náttúrunnar stendur á rúmlega 100 hektara svæði við Hellisheiðarvirkjun. Í þessum græna iðngarði höfum við byggt upp samfélag framsækinna fyrirtækja sem skilja mikilvægi hringrásarhugsunar. Í Jarðhitagarðinum nýta þessi fyrirtæki auðlindir svæðisins á ábyrgan og ábatasaman hátt og er sú uppbygging enn í fullum gangi.

Taktu þátt í sjálfbærri framtíð
Jarðhitagarðurinn er 103 hektarar að stærð með aðgengi að endurnýjanlegri orku beint frá Hellisheiðarvirkjun, stærstu jarðvarmavirkjun í Evrópu. Auk aðgengis að raforku og varmaorku er í Jarðhitagarði aðgengi að landi og vatnsauðlindum sem nýttar eru með hringrásarhugsun að leiðarljósi.
Aðstaða og auðlindirFréttir og greinar


Nýsköpun og auðlindanýting á Hellisheiði vakti áhuga
Fulltrúar norrænna og evrópskra stofnana, ráðuneyta og samstarfsaðila heimsóttu Hellisheiði í gær þar sem þeir kynntu sér starfsemi Hellisheiðarvirkjunar, uppbyggingu Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar og fjölbreytta nýsköpun og auðlindanýtingu á svæðinu. Í hópnum voru fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, EFTA, ORKIS, íslenskra og norskra ráðuneyta og norrænna stofnana á sviði nýsköpunar. Í heimsókninni fengu gestir kynningu á starfsemi…Lesa meira
ON verður bakhjarl Uppsprettu Suðurlands
Orka náttúrunnar hefur undirritað samkomulag um að gerast formlegur bakhjarl Uppsprettu Suðurlands, hátíðar vaxtar og verðmætasköpunar. Uppspretta sameinar ráðstefnu, sýningarsvæði og tengslamyndun þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar, sveitarfélög og almenningur koma saman. Að baki hátíðinni standa Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS), Háskólafélag Suðurlands og Markaðsstofa Suðurlands með það markmið að efla nýsköpun og verðmætasköpun á Suðurlandi.…Lesa meira
Vertu með í Jarðhitagarði
Við bjóðum velkomin í samfélag Jarðhitagarðsins sjálfbærnimiðuð fyrirtæki, sprotafyrirtæki og nýsköpunarverkefni sem starfa til dæmis við orkuframleiðslu og orkunýtingu, landbúnað, þörungaeldi, líftækni, ferðaþjónustu, vistvæna efnisframeiðslu og þau sem leggja áherslu á heilsu og vellíðan.

