Fulltrúar norrænna og evrópskra stofnana, ráðuneyta og samstarfsaðila heimsóttu Hellisheiði í gær þar sem þeir kynntu sér starfsemi Hellisheiðarvirkjunar, uppbyggingu Jarðhitagarðs Orku náttúrunnar og fjölbreytta nýsköpun og auðlindanýtingu á svæðinu. Í hópnum voru fulltrúar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, EFTA, ORKIS, íslenskra og norskra ráðuneyta og norrænna stofnana á sviði nýsköpunar.
Í heimsókninni fengu gestir kynningu á starfsemi ON, Jarðhitagarðinum og þeim tækifærum sem felast í því að nýta auðlindir jarðhitans með hringrásarhugsun að leiðarljósi. Bergur Sigfússon hjá Carbfix kynnti starfsemi fyrirtækisins og Carbfix-tæknina og hópurinn heimsótti borholu Carbfix á svæðinu. Þá heimsótti hópurinn fyrirtækin Climeworks og VAXA Technologies og kynnti sér starfsemi þeirra á svæðinu.
Climeworks vinnur að beinni kolefnisbindingu úr andrúmslofti en VAXA Technologies nýtir endurnýjanlega orku og aðföng til framleiðslu á fæðubótarefnum og náttúrulegum litarefnum fyrir matvælaiðnað.
„Það var gaman að fá þennan hóp í heimsókn og þau voru virkilega ánægð með að fá að kynna sér starfsemina uppi á Hellisheiði. Jarðhitagarðurinn er gott dæmi um hvernig hægt er að byggja upp nýja starfsemi í kringum endurnýjanlegar auðlindir og skapa þannig verðmæti úr orkunni á fleiri en einn hátt. Við erum mjög ánægð með að fá hingað gesti sem hafa áhuga á nýsköpun, sjálfbærri auðlindanýtingu og þeim tækifærum sem felast í íslenskri jarðhitaþekkingu,“ sagði Ingunn Gunnarsdóttir leiðtogi nýsköpunar en hún tók á móti hópnum fyrir hönd ON.
Uppbygging Jarðhitagarðsins heldur áfram og er framtíðarsýnin að fjölga fyrirtækjum á svæðinu og auka enn frekar nýtingu auðlindanna. Jafnframt stendur til að þróa Glóð sem miðstöð nýsköpunar, rannsókna og samstarfs á svæðinu.

Hópurinn heimsótti borholu Carbfix

VAXA Technologies er með starfsemi í Jarðhitagarðinum




