Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, kemur fram í nýjasta þætti þáttaraðarinnar NexTech, þar sem sjónum er beint að því hvernig Ísland bregst við loftslagsbreytingum með nýsköpun og sjálfbærum lausnum.
Í þættinum er farið yfir hvernig loftslagsbreytingar hafa haft áhrif á Íslandi, þar sem hlýnun sjávar, hopun jökla og jarðfræðilegar aðstæður gera landið að mikilvægum vettvangi þar sem hægt er að þróa og prófa nýjar leiðir í raunverulegum aðstæðum.
Sérstök umfjöllun er um Jarðhitagarð ON, þar sem farið er yfir hvernig orkuvinnsla er að þróast frá því að vera eingöngu framleiðsla á rafmagni og heitu vatni yfir í að vera hringrásarhagkerfi þar sem auðlindir Hellisheiðarvirkjunar eru nýttar til fulls.
Í þættinum er bent á að rafmagn og heitt vatn séu aðeins upphaf framleiðslunnar, aðrir straumar, á borð við jarðhitavökva, steinefni og gas, séu nú einnig nýttir sem hráefni fyrir nýjar atvinnugreinar. Þannig sé verið að umbreyta því sem áður var talið aukaafurðir í verðmæti.
Í viðtalinu segir Ingunn að með því að beita nýsköpun í rekstri sé markmið ON ekki aðeins að hámarka verðmæti heldur einnig að skapa þau í sátt við náttúruna og með sjálfbærni að leiðarljósi.
Hún bendir jafnframt á að slík umbreyting krefjist þess að endurhugsa þurfi rótgróin kerfi og viðhorf. „Það þarf nýsköpun til að endurhugsa hluti sem hafa verið óbreyttir í áratugi,“ segir Ingunn og bætir við að verkefnið sé krefjandi. Með því að innleiða hringrásarhugsun sé ON í raun að auka flækjustig eigin starfsemi en á móti skapist ný efnahagsleg verðmæti og tækifæri.
Ingunn undirstrikar einnig samfélagslega ábyrgð ON sem fyrirtækis í opinberri eigu. Með nýsköpun í orkunýtingu sé ekki aðeins verið að bæta rekstur heldur einnig skapa störf og styðja við sjálfbæra þróun samfélagsins.
Í þættinum er einnig fjallað um fleiri íslensk verkefni á sviði loftslagslausna, meðal annars eru sýnd viðtöl við þau Maxim Willemse, rekstrarstjóra hjá Climeworks og Söru Lind Guðbergsdóttur framkvæmdastjóra Climeworks á Íslandi og þau Berg Sigfússon kerfisstjóra hjá Carbfix og Eddu Sif Pind Aradóttur framkvæmdastjóra Carbfix sem ræða kolefnisföngun og -bindingu en bæði Carbfix og Climeworks eru hluti af Jarðhitagarði ON.
Hér má sjá þáttinn í heild, umfjöllun um ON hefst á sjöundu mínútu.




