Við Hellisheiðarvirkjun hefur á síðustu árum byggst upp einstakt vistkerfi fyrirtækja þar sem jarðhiti er nýttur á fjölbreyttari hátt en áður hefur þekkst. Í Jarðhitagarðinum vinna fyrirtæki, rannsakendur og frumkvöðlar saman að því að þróa lausnir sem byggja á endurnýjanlegri orku, hringrásarhugsun og betri nýtingu auðlinda.
Á Hellisheiðinni er ekki aðeins verið að framleiða rafmagn og heitt vatn. Þar er einnig verið að nýta fjölbreytta auðlindastrauma frá virkjuninni; jarðhitavökva, heitt vatn, kalt vatn, steinefni og varma á mismunandi hitastigum, sem skapa grunn að nýjum iðnaði og nýjum tækifærum til verðmætasköpunar.
Samspil sem skapar ný verðmæti
Það sem gerir þessa þróun sérstaklega áhugaverða er hvernig samspil fyrirtækja og auðlinda getur skapað ný verðmæti. Þar getur afgangsstraumur eða hliðarafurð frá einu fyrirtæki orðið að auðlind fyrir annað, innviðir verið samnýttir og þekking flætt á milli ólíkra verkefna.
Þessi nálgun skapar ekki aðeins umhverfislegan ávinning heldur einnig sterkari rekstrargrundvöll fyrir fyrirtæki. Með því að staðsetja starfsemi nálægt orkuvinnslu og öðrum nýsköpunarfyrirtækjum skapast aðstæður þar sem hægt er að þróa lausnir hraðar, lækka kostnað og byggja upp samstarf sem annars hefði ekki orðið til.
Á Hellisheiði má þegar sjá dæmi um slíka þróun. Fyrirtæki í Jarðhitagarðinum nýta auðlindir virkjunarinnar á ólíkan hátt til framleiðslu, rannsókna og þróunar. Þar verða til tengingar milli orkugeirans, matvælaframleiðslu, líftækni, kolefnisbindingar, efnavinnslu og hátækniiðnaðar. Þessi fjölbreytni styrkir vistkerfið í heild og skapar jarðveg fyrir nýjar hugmyndir og ný fyrirtæki.
Glóð getur skipt sköpum
Reynslan sýnir hvað getur gerst þegar aðgengi að endurnýjanlegri orku, innviðum og sérþekkingu kemur saman á einum stað eins og í Jarðhitagarði. Fyrirtæki fá þar tækifæri til að þróa lausnir í raunverulegu rekstrarumhverfi með beina tengingu við auðlindirnar sjálfar. Slíkt umhverfi getur skipt sköpum þegar ný tækni er þróuð og færð frá rannsóknarstigi yfir í atvinnusköpun og alþjóðlegan vöxt.
Næsta skref í þeirri þróun er Glóð, miðstöð nýsköpunar og rannsókna í Jarðhitagarðinum. Glóð verður vettvangur fyrir frumkvöðla, sprotafyrirtæki, rannsakendur og alþjóðlega samstarfsaðila sem vilja þróa lausnir tengdar sjálfbærri auðlindanýtingu og jarðhita.
Markmiðið með Glóð er að lækka þröskuldinn fyrir ný verkefni og skapa aðstæður þar sem hugmyndir geta þróast hraðar í nánu samstarfi við iðnað, rannsóknarumhverfi og aðra aðila innan vistkerfisins. Þar verður hægt að prófa lausnir, þróa frumgerðir og byggja upp samstarf sem tengir saman orku, nýsköpun og sjálfbærni.
Tækifæri á alþjóðavísu
Á alþjóðavísu fer áhugi á slíkum lausnum hratt vaxandi. Fyrirtæki og samfélög um allan heim leita leiða til að draga úr losun, nýta auðlindir betur og byggja upp sjálfbærari iðnað. Þar hefur Ísland sérstaka stöðu, ekki aðeins vegna endurnýjanlegrar raforku heldur einnig vegna þeirrar reynslu sem hefur byggst upp í kringum nýtingu hennar.
Jarðhiti býður upp á tækifæri sem ná langt út fyrir hefðbundna orkuframleiðslu. Með réttu samstarfi, aðgengi að innviðum og öflugu nýsköpunarumhverfi getur hann orðið grunnur að nýjum lausnum, nýjum fyrirtækjum og nýjum útflutningstækifærum.
ON vill eiga samtal við fyrirtæki, fjárfesta, rannsakendur og samstarfsaðila sem sjá möguleika í þessari þróun og vilja skoða hvernig jarðhiti getur orðið drifkraftur nýsköpunar og sjálfbærrar verðmætasköpunar.
Í næsta mánuði mun Dr. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON, kynna þessa sýn og reynslu ON á World Geothermal Congress (WGC) í Calgary í Kanada, einni stærstu ráðstefnu heims á sviði jarðhita.



