ON og KLAK í samstarf og Hringiða heimsækir Jarðhitagarð

Orka náttúrunnar (ON) og KLAK Icelandic Startups hafa ákveðið að eiga í samstarfi á sviði nýsköpunar með áherslu á sjálfbæra auðlindanýtingu, umhverfisvernd og orkuskipti.

Fyrsti liðurinn í samstarfinu var heimsókn sprotafyrirtækja sem eru í Hringiðu, viðskiptahraðli KLAK fyrir grænar lausnir í Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar.

Í heimsókninni kynnti Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá ON, starfsemi fyrirtækisins, með sérstaka áherslu á tækifærin sem felast í Jarðhitagarði ON og nýsköpunarvettvanginum Glóð og hvernig ON vinnur markvisst að því að skapa vettvang fyrir nýsköpun í tengslum við nýtingu jarðhita. Þá hélt Salka Kolbeinsdóttir frá Carbfix kynningu um Carbfix og fór með hópinn í vettvangsferð að borholuhúsi.

Heimsóknin vakti mikinn áhuga meðal þátttakenda í Hringiðu og sjá forsvarsmenn KLAK fyrir sér að sprotafyrirtæki úr hraðlinum geti með tímanum þróast áfram inn í umhverfi Glóðar og Jarðhitagarðsins, þar sem skapast einstök tækifæri til að prófa og þróa lausnir í raunverulegu umhverfi.

Samstarf KLAK Icelandic Startups og ON var handsalað á dögunum af þeim Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóri KLAK og Ingunni Gunnarsdóttur, leiðtoga nýsköpunar hjá ON. Samstarfið felur í sér bæði þróun sameiginlegra verkefna og gagnkvæman stuðning við verkefni hvors aðila fyrir sig. Það mun meðal annars snúa að því að tengja frumkvöðla við þau tækifæri sem felast í starfsemi ON, þar á meðal í Glóð og Jarðhitagarði ON, auk þess að opna aðgengi að þeim vettvangi og stuðningi sem KLAK býður upp á. Einnig verður unnið sameiginlega að því að greina tækifæri í innlendum og alþjóðlegum nýsköpunarverkefnum, stutt við uppbyggingu öflugs frumkvöðlasamfélags á Íslandi og unnið að þróun og framkvæmd verkefna sem stuðla að sjálfbærri framtíð.

„Samstarfið við ON er mikilvægt skref í að efla nýsköpun á sviði sjálfbærni og orkuskipta á Íslandi. Með því að tengja frumkvöðla við Jarðhitagarðinn og Glóð skapast raunveruleg tækifæri til að þróa lausnir með alþjóðleg áhrif,“ sagði Ásta Sóllilja.

Ingunn bætti við að samstarfið við KLAK væri lykilskref í að efla samfélag frumkvöðla í kringum Glóð og Jarðhitagarðinn. „Með því að sameina krafta okkar getum við betur stutt við þróun nýrra verkefna og skapað sterkari farveg fyrir nýsköpun og lausnir sem styðja við sjálfbæra framtíð,“ sagði Ingunn.

Það verður spennandi að fylgjast með þessu samstarfi vaxa og þeim verkefnum sem munu spretta upp úr því á næstu misserum.